Nokia E52 - Pörun tækja

background image

Pörun tækja

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Tenging

>

Bluetooth

.

Opnaðu flipann pöruð tæki.
Fyrir pörun skaltu ákveða þitt eigið lykilorð (1-16 tölustafir) og biðja notanda hins

tækisins um að nota sama lykilorð. Tæki sem ekki hafa notendaviðmót eru með fast

140 Tengingar

background image

lykilorð. Aðeins þarf að slá inn lykilorðið þegar tækin eru tengd í fyrsta skipti. Hægt er

að heimila tenginguna að pöruninni lokinni. Með því að para saman tæki og heimila

tenginguna verður fljótlegra að koma á tengingu þar sem ekki þarf að samþykkja

tenginguna á milli paraðra tækja í hvert skipti sem henni er komið á.
Lykilorð fyrir ytri SIM-aðgang verður að vera 16 tölustafir.
Í ytri SIM-stillingu er hægt að nota SIM-kort tækisins með samhæfum aukabúnaði.
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins hægt að hringja og svara

símtölum með samhæfum aukabúnaði sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði).
Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er virk, nema í

neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu hefur verið

læst skal fyrst slá inn lykilnúmerið til að opna það.
1 Veldu

Valkostir

>

Nýtt parað tæki

. Tækið byrjar þá að leita að Bluetooth-tækjum

á svæðinu. Ef gögn hafa áður verið send um Bluetooth-tengingu birtist listi með

fyrri leitarniðurstöðum. Leitað er að fleiri Bluetooth-tækjum innan svæðisins með

því að velja

Fleiri tæki

.

2 Veldu tækið sem para á tækið þitt við og sláðu inn lykilorðið. Slá verður sama lykilorð

inn í hitt tækið.

3 Til að koma alltaf sjálfkrafa á tengingu milli tækisins þíns og annars tækis skaltu

velja

. Til að staðfesta tenginguna handvirkt í hvert sinn sem tækin reyna að

tengjast skaltu velja

Nei

. Eftir pörunina er tækið vistað á síðu paraðra tækja.

Til að gefa paraða tækinu gælunafn velurðu

Valkostir

>

Gefa stuttnefni

. Gælunafnið

birtist eingöngu í þínu tæki.

Pörun er eytt með því að velja hana og svo

Valkostir

>

Eyða

. Til að eyða öllum pörunum

velurðu

Valkostir

>

Eyða öllum

. Ef tækið er tengt við annað tæki og pöruninni við það

er eytt, er pörunin fjarlægð strax og tengingunni er slitið.

Til að leyfa pöruðu tæki að tengjast sjálfkrafa við þitt tæki velurðu

Stilla sem

heimilað

. Hægt er að koma á tengingu á milli tækisins þíns og hins tækisins án vitneskju

þinnar. Ekki þarf að samþykkja eða heimila tenginguna sérstaklega. Notaðu þessa stöðu

eingöngu fyrir eigin tæki, líkt og samhæf höfuðtól eða tölvu, eða tæki þeirra sem þú

þekkir og treystir. Ef þú vilt samþykkja tengingarbeiðni frá hinu tækinu í hvert skipti

velurðu

Stilla sem óheimilað

.

Til að nota Bluetooth-hljóðaukabúnað, t.d. handfrjálsan Bluetooth-búnað eða höfuðtól,

þarf að para tækið við aukabúnaðinn. Lykilorðið og aðrar leiðbeiningar eru í

notendahandbók aukabúnaðarins. Kveiktu á hljóðaukabúnaðinum til að tengjast við

Tengingar 141

background image

hann. Ákveðnar gerðir hljóðaukabúnaðar tengjast sjálfkrafa við tækið. Ef það gerist ekki

skaltu opna flipann fyrir pöruð tæki, velja aukabúnaðinn og

Valkostir

>

Tengjast við

hljóðtæki

.