Sending og móttaka gagna með Bluetooth
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
Bluetooth
.
1 Þegar kveikt er á Bluetooth í fyrsta skipti ertu beðin/n um að gefa tækinu nafn.
Gefðu tækinu þínu auðþekkjanlegt nafn svo auðveldara verði að bera kennsl á það
þegar mörg Bluetooth-tæki eru í nágrenninu.
2 Veldu
Bluetooth
>
Kveikt
.
3 Veldu
Sýnileiki síma míns
>
Sýnilegur öllum
eða
Tilgreina tímabil
. Ef þú velur
Tilgreina tímabil
þarftu að tilgreina þann tíma sem tækið þitt er sýnilegt öðrum.
Notendur annarra Bluetooth-tækja geta nú séð tækið og nafnið sem var slegið inn.
4 Opnaðu forritið sem geymir hlutinn sem þú vilt senda.
5 Veldu hlutinn og síðan
Valkostir
>
Senda
>
Með Bluetooth
. Tækið leitar að
Bluetooth-tækjum innan svæðisins og birtir þau í lista.
Ábending: Ef gögn hafa áður verið send um Bluetooth-tengingu birtist listi með
fyrri leitarniðurstöðum. Til að leita að fleiri Bluetooth-tækjum velurðu
Fleiri tæki
.
6 Veldu tækið sem þú vilt tengjast við. Ef hitt tækið fer fram á pörun áður en hægt er
að flytja gögn er beðið um aðgangskóða.
Þegar tengingu hefur verið komið á birtist textinn
Sendi gögn
.
Mappan Sent í forritinu Skilaboð vistar ekki skilaboð sem hafa verið send um Bluetooth.
Til að sækja gögn um Bluetooth-tengingu velurðu
Bluetooth
>
Kveikt
og
Sýnileiki
síma míns
>
Sýnilegur öllum
til að sækja gögn frá ópöruðu tæki eða
Falinn
til að
sækja eingöngu gögn frá pöruðu tæki. Þegar gögn berast um Bluetooth heyrist tónn og
spurt er hvort taka eigi á móti skilaboðunum sem innihalda gögnin, allt eftir stillingum
á sniðinu sem er virkt. Ef þú samþykkir eru skilaboðin sett í innhólfsmöppuna í forritinu
Skilaboð.
Ábending: Hægt er að nálgast skrárnar í tækinu eða á minniskortinu með því að nota
samhæfan aukahlut sem styður FTP (til dæmis fartölvu).
Sjálfkrafa er slökkt á Bluetooth-tengingu eftir að gögn hafa verið send eða móttekin.
Aðeins er hægt að hafa tengingar sem ekki er verið að nota í gangi ef tengingin er við
PC Suite eða aukabúnað, eins og höfuðtól.