Nokia E52 - Um Bluetooth

background image

Um Bluetooth

Bluetooth-tækni í tækinu virkjar þráðlausar tengingar á milli tveggja rafeindatækja sem

eru í innan við 10 metra (33 feta) fjarlægð frá hvort öðru. Hægt er að nota Bluetooth-

tengingu til að senda myndir, hreyfimyndir, texta, nafnspjöld, minnismiða í dagbókum

og til að tengjast við önnur tæki sem nota Bluetooth-tækni.
Þar sem tæki sem nota Bluetooth-tækni hafa samskipti með útvarpsbylgjum þurfa tækið

þitt og tækið sem það er tengt við ekki að vera staðsett beint á móti hvort öðru. Tækin

tvö þurfa einungis að vera í innan við 10 metra fjarlægð frá hvort öðru. Truflanir geta

þó orðið á tengingunni vegna veggja eða annarra rafeindatækja.
Hægt er að hafa fleiri en eina Bluetooth-tengingu virka í einu. Til dæmis er hægt að

flytja skrár úr öðru samhæfu tæki þó að það sé tengt við höfuðtól.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR sem styður eftirfarandi snið:

ítarleg hljóðdreifing (advanced audio distribution), fjarstýring (audio video remote

control), grunnmyndir (basic imaging), grunnprentun (basic printing),

upphringisamband (dial-up networking), skráarflutningur (file transfer), almennur

aðgangur (generic access), handfrjálst (hands-free), höfuðtól (headset),

mannviðmótstæki (human interface device), staðbundin staðsetning (local

positioning), vöktun (object push), aðgangur að símaskrá (phonebook access), SIM-

aðgangur (SIM access), raðtengi (serial port), mynddreifing (video distribution). Til að

tryggja samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota aukabúnað

sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá

framleiðendum annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu

hennar.

Tengingar 139