Gagnasnúra
Ekki taka USB-snúruna úr sambandi meðan á flutningi stendur, því það gæti skemmt
gögn.
Til að flytja gögn milli tækisins og tölvu.
1 Settu minniskort í tækið þitt og tengdu tækið við samhæfa tölvu með
gagnasnúrunni.
2 Þegar tækið spyr hvaða stillingu á að nota velurðu
Gagnaflutningur
. Í þessari
stillingu geturðu séð tækið þitt sem utanáliggjandi harðan disk í tölvunni.
3 Slíta skal tengingunni í tölvunni (til dæmis með viðeigandi hjálparforriti í Windows)
til að skemma ekki minniskortið.
Til að nota Nokia PC Suite með tækinu seturðu Nokia PC Suite upp á tölvunni, tengir
gagnasnúruna og velur
PC Suite
.
Til að nota tækið til að tengja tölvuna við vefinn tengirðu gagnasnúruna og velur
Tengja
tölvu við net
.
138 Tengingar
Til að samstilla tónlistina í tækinu þínu við tónlistarspilara Nokia seturðu forritið fyrir
tónlistarspilara Nokia upp á tölvunni, tengir gagnasnúruna og velur
PC Suite
.
Til að prenta út myndir á samhæfum prentara velurðu
Myndflutningur
.
Til að breyta USB-stillingunni sem þú notar yfirleitt með gagnasnúrunni velurðu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
USB-snúra
og
USB-tengistilling
og viðeigandi
valkost.
Til að láta tækið spyrja um stillinguna í hvert skipti sem þú tengir gagnasnúruna við
tækið velurðu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
USB-snúra
og
Spyrja við
tengingu
>
Já
.