
SIM-aðgangssnið
Með SIM-aðgangssniðinu getur þú komist inn á SIM-kortið í tækinu þínu um samhæfan
bílbúnað. Þannig þarftu ekki annað SIM-kort til að komast í upplýsingar á SIM-kortinu
og tengjast við GSM-símkerfi.
Til að nota SIM-aðgangssniðið þarftu eftirfarandi:
•
Samhæfan bílbúnað sem styður þráðlausa Bluetooth-tækni
•
Gilt SIM-kort í tækið þitt
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins hægt að hringja og svara
símtölum með samhæfum aukabúnaði sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði).
142 Tengingar

Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er virk, nema í
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu hefur verið
læst skal fyrst slá inn lykilnúmerið til að opna það.
Nánari upplýsingar um bílbúnað og samhæfni við tækið þitt má finna á vefsíðu Nokia
og í notendahandbókinni fyrir bílbúnaðinn.
SIM-aðgangssniðið notað
1 Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
Bluetooth
og
Ytra SIM
>
Kveikt
.
2 Gera Bluetooth-tengingar virkar í bílbúnaðinum.
3 Notaðu bílbúnaðinn til að hefja leit að samhæfum tækjum. Leiðbeiningar er að finna
í notendahandbók bílbúnaðarsímans.
4 Veldu tækið þitt úr lista yfir samhæf tæki.
5 Sláðu aðgangskóða Bluetooth sem sýndur er á skjá bílbúnaðartækisins inn í tækið
þitt til að para tækin.
Ábending: Ef þú hefur þegar farið inn á SIM-kortið úr bílbúnaðinum með virka
notandasniðinu leitar bílbúnaðurinn sjálfkrafa að tæki með því SIM-korti. Ef það finnur
tækið þitt og virkjar leyfið sjálfvirkt tengist bílbúnaðurinn sjálfkrafa við GSM-símkerfið
þegar þú ræsir bílinn.
Þegar snið fyrir ytri aðgang að SIM-korti hefur verið virkjað getur þú notað forrit á tækinu
þínu sem þurfa ekki tengingu við símkerfi eða SIM-þjónustu.
Til að koma á tengingu milli tækisins þíns og bílbúnaðarins án þess að samþykkja það
sérstaklega velurðu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
Bluetooth
og opnar flipann
fyrir pöruð tæki. Veldu bílbúnaðinn og
Stilla sem heimilað
og svaraðu
Já
til að staðfesta
fyrirspurnina. Ef bílbúnaðurinn er stilltur sem óheimill verður að samþykkja tengingar
í hvert sinn.
Til að ljúka ytri SIM-aðgangstengingunni úr tækinu þínu skaltu velja
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
Bluetooth
og
Ytra SIM
>
Slökkt
.