Endurvinnsla
Að loknum endingartíma tækisins má endurnýta allan efnivið tækisins sem efni og orku.
Til að tryggja að rétt sé staðið að losun og endurvinnslu tekur Nokia, ásamt
samstarfsaðilum sínum, þátt í áætlun sem nefnist We:recycle.Til að fá upplýsingar um
endurvinnslu á gömlum Nokia-vörum og hvar finna má losunarstaði skal fara á
www.nokia.com/werecycle, eða ef farsími er notaður, nokia.mobi/werecycle, eða
hringja í þjónustuver Nokia.
Endurvinna skal pakkningar og notandahandbækur á næstu endurvinnslustöð.
Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á vörunni, rafhlöðunni, bæklingnum eða
umbúðunum táknar að fara verður með allan rafbúnað og rafeindabúnað, rafhlöður og
rafgeyma á sérstaka staði til förgunar að líftíma vörunnar liðnum. Þessi krafa á við innan
Evrópusambandsins. Hendið þessum vörum ekki með heimilisúrgangi. Nánari
upplýsingar um umhverfiseiginleika tækisins eru á www.nokia.com/ecodeclaration.